Jæja í dag byrjaði ég á LR-kúrnum og er dagurinn því búinn að vera svona:
Morgunmatur: 6 probalance töflur, 30 ml Aloe vera gel og te. Létt drykkjarjógúrt og 1/2 banani, stórt glas af vatni.
Millimáltíð: 1/2 banani, stórt glas af vatni
Hádegi: Eggjakaka með skinku og osti, stórt glas af vatni. Aloe vera gel, 6 probalance töflur
Millimáltíð 1: 1 Epli, te
Millimáltíð 2: Banani, vatnsmelóna, te
Kvöldmáltíð: 6 probalance töflur, Aloe Vera gel, maísstöngull, ein kjúklingabringa grilluð, soðið grænmeti og grænt pestó, 2 msk.
Kvöldsnarl: Vínber, te
Svona verða næstu tveir dagar hjá mér og þá fer ég að taka inn sheik í staðinn fyrir máltíðir í allt að tvær vikur. Er að sleppa brauði, sykri, hrísgrjónum, pasta og kartöflum. Einnig öllu gosi, drekk einungis vatn og te næstu vikurnar 
Hlakka til að kíkja bloggrúnt á ykkur - hef haft allt of mikið að gera en já þyngdin í morgun var 73.5 svo það verður gaman að fylgjast með vigtinni hrapa vonandi niður á næstunni 
Gangi ykkur öllum vel 