14.06.2007 15:17:40 / ataksgellan

Þröngar buxur orðnar passlegar

Oh, hvað mér leið vel í morgun þegar ég dró fram buxur sem voru í fyrra allt, allt of þröngar á mig.  Þær flugu upp um mig áðan og glöð í bragði arkaði ég út - orðin buxunum ríkari!  Steig á Viktoríuna mína hérna heima og oftast flakkar hún með mig upp og niður um tvö kíló en í morgun vigtaði ég mig tvisvar og vigtin sýndi 71.5 í bæði skiptin - þá er bara stefnt á að ná 71 kílói á þessari vigt í næstu viku og svo koll af kolli. Hef ákveðið að stefna á hálft kíló í einu og gleðjast yfir hverjum áfanga.  Ég fer ekki út fyrr en eftir mánuð svo ég hlýt að ná þessu 1 1/2 kílói af mér ef ég held áfram að vera svona stabíl í mataræðinu.  Er þegar búin að drekka 1 1/2 L af vatni í dag og einn Kristal + en svo tek ég herbóteið með mér í vinnuna á eftir.  Í morgunmat fékk ég mér herbósjeik með banana, frosnum jarðaberjum og tvöföldum skammti af próteini ásamt einni heilsurísköku með súkkulaði.  Fékk mér svo aðra svona rísköku í hádeginu og um tvöleytið fékk ég mér grillaða kjúklingabringu og tvær litlar kartöflur.  Í kvöld eftir vinnu hlakka ég svo til að fá mér seinni sjeikinn minn og auðvitað vítamínin líka :)

Fór í tvöfaldan trimmform tíma í gær og fór í styrkingu og húðtíma.  Í fyrramálið fer ég svo í styrkingu og brennslutíma og í næstu viku klárast kortið mitt en ég á 5 tíma eftir.  Um helgina ætla ég að stefna á góðan göngutúr og fara svo í einn body combat tíma líka.  Er bara búin að vera að vinna eins og brjálæðingur upp á síðkastið svo ég hef ekki bæði haft tíma fyrir ræktina og trimmformið en um leið og trimmformkortið klárast að þá verður það ræktin alla vega 4 sinnum í viku :)

Takk fyrir peppið og kommentin þið sætu skvísur þarna úti og gangi ykkur vel líka með ykkar verkefni.

Knúserí........


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 00:03:27 / ataksgellan

Gómsætt ávaxtabrauð/sólskinsdagur/freistingar

Byrjaði daginn á góðum herbósheik með fullt af frosnum jarðaberjum, klaka og banana - allt í ískaldri sojamjólk.  Skrapp svo í brennslutíma í trimforminu og kom heim og lagðist í sólbað hér fyrir utan í steikjandi hita. Hjólaði svo og sótti krakkana á leikskólann og beint mað þau í 1 1/2 tíma í sund, váááááááááá hvað það var ljúft - mælirinn sýndi 17 gráður og algjört logn var í lauginni.

Eftir sundið gaf ég krökkunum ís og fékk mér sjálf T2 að drekka sem er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana :) Einnig verð ég að segja ykkur frá geggjuðu ávaxtabrauði sem fæst í Heilsubakaríinu í Grímsbæ en það er með spelti, rúgmjöli, rúsínum, döðlum, fíkjum og fleiru - allt voðalega hollt og gott. Alveg truflað brauð. Einnig er hafrakexið frá þeim ómissandi og þetta hámar maður í sig með góðri samvisku :)

En alla vega, fékk mér svo herbósjeik í kvöldmatinn og smá ávaxtabrauð með og auðvitað er ég búin að drekka 2 L af vatni í dag og ekkert gos hefur farið inn fyrir mínar varir í 8 daga - í alvöru ég kveið því að hætta diet-coke drykkjunni en ég er ekki einu sinni með fráhvarfseinkenni eins og svo oft áður.  Vigtin í sundinu sýndi svo 72,6 kíló sem er það léttasta sem ég hef verið í langan tíma á þeirri vigt en vigtin hér heima í morgun sýndi 72 kíló slétt.  Svo nú er þetta allt að koma hjá mér - mér líður svo vel á herbóinu - er full af orku og svo er svo gott að standa sig vel í gosbanninu - það er svo hvetjandi að geta staðist freistingar :)

Kíki á ykkur skvísurnar mínar :)

Túrelú.....


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 00:00:04 / ataksgellan

Neysluvenjur barnanna okkar

Inni á vefsvæði Sölufélags Garðyrkjumanna, islenskt.is er ný grein eftir Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur hjúkrunarfræðing þar sem hún fjallar um okkur foreldrana sem fyrirmyndir barna okkar hvað varðar mataræði og matarvenjur.

Í greininni eru nokkrar sláandi niðurstöður úr rannsókn sem var gerð á Íslandi á árunum 2003 og 2004, á mataræði 9 og 15 ára barna.

 Þar segir að innan við 15% barna fylgja ráðleggingum manneldisráðs um að borða að minnsta kosti 200 gr. á dag af ávöxtum og að eingöngu 1% barnanna fylgja ráðleggingum um að borða 200 gr. af grænmeti á dag.

Börnin borða ekki nóg af kjöti og fiski og drekka 15 ára börnin að meðaltali 4 lítra af gosi og svaladrykkjum á viku og 9 ára börnin um 2,5 lítra á viku.

18% 9 ára barnanna taka lýsi daglega en eingöngu 3% þeirra 15 ára.

Og að lokum segir hún frá því að um 30% orkuinntaka 15 ára barnanna kemur úr fæðuflokkum sem gefa mjög lítið af vítamínum og steinefnum.

 Við foreldrar getum haft mikil áhrif á fæðuval og inntöku barna okkar. Mikilvægast tel ég að vera góðar fyrirmyndir hvað þessa þætti varðar og það erum jú við foreldrar sem sjáum um innkaup inn á heimilin. Með því að hafa ávexti á borðum þar sem börnin geta gengið í þá og gott framboð af góðu grænmeti á matmálstímum, getum við stutt þau til að velja það sem er gott fyrir þau.

Rakst á þessa grein inni á þjálfun.is og fannst þetta sláandi.  Ég á tvö börn, stelpan mín sem er 2 1/2 drekkur auðvitað ekki gos heldur aðallega mjólk og vatn og strákurinn er duglegur í vatninu líka en hann er alveg að verða 6 ára og einstaka sinnum fær hann eitt gosglas en þá bara á laugardögum og algjörlega spari.  Þetta virðir hann alveg og er ekki að biðja um þetta þess á milli.  Einnig reyni ég að sneiða fram hjá mjög sykruðum drykkjum og gef þeim frekar góðan ávaxtasafa sem inniheldur lítið af viðbættum sykri.  Núna eftir að ég hætti að drekka gos að þá finnst mér líka sem ég sé orðin betri fyrirmynd fyrir börnin mín en að vera sífellt með þetta á boðstólnum fyrir framan þau.

En átakið mitt gengur vel og ég er svo stolt af því að drekka ekki lengur gosið og hef haldið mig við vatnið eingöngu með öllum mat, meira að segja grillmatnum um helgina :) Ég hef lítið getað komist í ræktina en er dugleg í trimforminu og svo er vinnan mín þannig að ég stend allan tímann, stundum hátt í 5 tíma vaktir og er á fullu allan tímann svo það er ágætist brennsla í því :) Er búin að vera að vinna mikið upp á síðkastið og hef bara tekið með mér próteinstangir og herbóte :)

En takk fyrir öll commentin skvísurnar mínar, þið eruð bara æðislegar og ég þreytist ekkert á að segja það við ykkur.  Kíki minn bloggrúnt á ykkur á eftir og vonandi gengur ykkur öllum vel.

Knúserí.........

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 17:35:31 / ataksgellan

Markmiðasetning

Mikilvægi markmiða


    Aðalmálið með að setja sér markmið er að þau séu raunhæf, að þú getir náð þeim og að þau séu mælanleg, t.d. að lækka hjartsláttinn, minnka fituprósentuna, léttast um viss mörg kíló o.s.frv.
Við skiptum markmiðunum okkar í þrjá flokka: 
Skammtímamarkmið, en það eru frekar auðveld markmið sem koma okkur á sporið í átt að lokatakmarkinu. Skammtímamarkmiðin veita þér mikla gleði þegar þeim er náð og halda baráttuandanum við á leið þinni að stóra sigrinum. Reyndu að vera nokkuð nákvæm(ur) þegar þú setur þér skammtímamarkmiðin, hafðu þau það erfið að þú þarft að hafa fyrir þeim en ekki þannig að þú gefist upp á þeim. Mundu að þú þarft að sýna ákveðni og viljastyrk, en ef þú gerir það færðu það þúsundfalt til baka. Skammtímamarkmið ættu að ná yfir u.þ.b. 4 – 6 vikur og geta t.d. verið að mæta 1 – 2 sinnum í ræktina, borða hollt alla vega einu sinni á dag eða neita sér um einhverja freistingu.
 
    Miðtímamarkmiðin þín eru framlenging á skammtímamarkmiðunum og eiga að ná yfir 4 – 12 mánuði. Þar herðirðu aðeins á skemmri markmiðum þínum og getur farið enn lengra með þau. Á miðtímanum ertu farinn að sjá virkileg áhrif frá æfingum og breyttu mataræðinu, þú finnur mun á fötum, hvíldarpúlsinn er lægri, þú ert léttari og fituprósenta þín hefur lækkað. Þú finnur jafnvel fyrir skapferlisbreytingum eins og aukinni einbeitingu og þolinmæði og meira sjálfstrausti. Miðtímamarkmiðin þurfa að vera meira krefjandi en skammtímamarkmiðin en þó aldrei svo að þér finnist allt vera kvöð á þér, fyrst og fremst á þetta að vera gaman og þú átt að hlakka til næstu æfingar en ekki kvíða fyrir henni.
     Langtímamarkmiðin eru í raun fínpússuð miðtímamarkmið. Þau eiga að ná yfir lágmark eitt ár og helst að endast alla ævi. Langtímamarkmiðin eiga að vera þau að þú sért sáttur við eigin líkama og heilsu og búir í líkama sem veitir þér sjálfstraust og gleði. Hollt mataræði og regluleg hreyfing eiga að vera orðin hluti af þínu nýja lífi og þú hefur nú þá þekkingu á þínum eigin líkama að þú veist hversu miklar æfingar og hversu strangt mataræði hann þarf til að virka eins og honum er ætlað.
Þó að allt þetta hljómi vel og virki auðvelt er langt í frá að svo sé. Það munu koma upp hundruð augnablika þar sem þér mun finnast þetta mjög erfitt og það munu koma upp vandamál sem þér finnast jafnvel óyfirstíganleg. Þú munt freistast til að sleppa æfingu og þú munt freistast til að fá þér nammi þegar þú átt að fá þér epliþ Það mikilvægasta er að þú gerir þér grein fyrir þessu öllu frá upphafi og ætlir ekki að fara af stað og aldrei falla af baki.
    Málið er ofur einfalt, Það falla nær allir einhverntímann, fyrstu vikuna, fyrsta daginn eða jafnvel fyrsta klukkutímann. Það er enginn fullkominn. Að þú sért að gera betur í dag en í gær og betur þessa vikuna en þá seinustu er það sem skiptir máli, aldrei gleyma því.
    Það eru nokkur atriði sem er nauðsynlegt að hafa í huga áður en þú sest niður og byrjar að setja þér markmið. Þetta eru atriði sem við þurfum flest að glíma við og geta hjálpað okkur að vera raunsærri og nákvæmari varðandi markmið okkar.

Hvað mun hvetja mig til að stunda líkamsrækt?
 
Hvatning er ekki bara spurning um viljastyrk, því viljastyrkur er skammtímaáætlun. (,,ég ætla ekki að reykja þessa sígarettu”…. ,,Ég ætla ekki að borða þetta súkkulaði”… ,,Ég ætla í göngutúr núna”) Hvatning er langtímaaðferð til að öðlast eitthvað sem hugurinn girnist. Viljastyrknum getum við kveikt og slökkt á eins og ljósrofa en raunveruleg og sönn hvatning er eilífur logi sem aldrei deyr.
Áður en þú byrjar á ferð þinni að heilsusamlegra líferni þá verður þú fyrst að ákveða hver þín persónulega hvatning er. 
    Það þarf kjark til að líta í eigin barm og spyrja sjálfa sig hver getur verið sú sterka hvatning sem hjálpað þér að gera erfiðar breytingar til að öðlast betra líf.  Þú munt sennilega upplifa einhverja vanlíðan, því það eru jú oftast veikleikar okkar sem við horfumst í augu við en þú verður að taka á þessu með jákvæðu hugarfari.  Þessi innri hvatning mun koma djúpt innan frá undirmeðvitund þinni og styðja þig í gegnum erfiðu stundirnar.

Ekki nota yfirborðskenndar ástæður.

Eins og ,,ég vil léttast” eða ,,ég vil vera unglegri”. Með þvi að leita dýpra áttarðu þig e.t.v á að svarið er frekar að þú vilt ekki fá hjartasjúkdóm um aldur fram, ekki sykursýki, of háan blóðþrysting eða æðasjúkdóma. Kannski er þetta spurning um sjálfstraust eða vanlíðan í þínum eigin líkama.
Hver svo sem ástæðan er verður hún að vekja svo sterkar tilfinningar hjá þér að allt daglegt amstur og óvæntar uppákomur koma ekki í veg fyrir áætlanir þínar um bætta heilsu.

Til að ná toppárangri.

     Er nauðsynlegt að setja sér raunhæf markmið, bæði til langs tíma og síðan styttri markmiðin sem koma þér að lokum að langtímamarkmiði  þínu. Þessi markmið skaltu skrifa niður á markmiðaformið hérna á eftir en passaðu þig á því að vera með markmið sem standast og er mögulegt að ná.
Ekki ætla þér að missa 20 kíló á tveimur mánuðum eða hætta að borða nammi yfir höfuð. Þetta eru óraunhæf markmið sem munu að öllum líkindum enda með að þú verður mjög vonsvikinn og enn verr staddur líkamlega og andlega en áður en þú hófst átakið.

Þú verður að horfast í augu við sannleikann.
 
    Vænlegt er taka á þeim utanaðkomandi áhrifum sem geta komið í veg fyrir að þú getir bætt heilsu þína. Þau geta verið börnin/eiginmaðurinn(konan)eða vinirnir sem koma í veg fyrir að þú komist á æfingu, borða nammi eða sætabrauð fyrir framan þig og láta þig finna fyrir sektarkennd þegar þú getur ekki varið tíma með þeim o.s.frv.
Já,  þú verður að vera vera örlítið sjálfselsk(ur), en til lengri tíma litið munu allir hagnast á þessari sjálfselsku því það er engum til gagns ef heilsu þinni hrakar stöðugt og lífsgæði þín minnka? Að láta eftir sér einstaka sinnum að borða fituríkan mat eða taka 20 mínútna æfingu í stað 30 mínútna er í góðu lagi, en þú verður að setja þér reglur og forgangsröð sem skilar þér í átt að markmiði þínu með sem minnstum skakkaföllum.
Í raun mælum við með því að fólk taki sér einstaka ,,nammidag” á milli því lífið er til þess að njóta þess og við vorum ekki sett á þessa jörð til að lifa eingöngu á rískökum og gulrótum.

Ert þú ert virkilega tilbúin? Já, værirðu nokkuð að lesa þetta annars.

Rétti tíminn taka skrefið í átt að heilbrigðari líferni er NÚNA. Að bregðast strax við og gera eitthvað í þínum málum er það sem þú átt að gera, frestaðu því ekki að láta þér líða betur en þér hefur nokkurn tíma líðið áður. Það gerist ekkert að sjálfum sér, gríptu tækifærið þegar þú finnur að þú ert virkilega tilbúin því það gæti verið að á morgun finnist þér það of seint og byrjir að bíða eftir næsta ,,fullkomna augnablikinu” til að gera eitthvað. Byrjaðu núna!

Já, stelpur - þetta er ekkert flóknara - er það nokkuð??? Annars er dagurinn minn búinn að ganga mjög vel og gærdagurinn líka. Fékk mér tvo sheika og tók vítamínin mín og brennslutöflurnar og drakk 2-3 lítra af vatni + herbóteið.  Í kvöldmatinn er ég búin að útbúa kjúklingasalat en í því er ég með salatblöndu, papriku, gúrku, rauðlauk, egg, kjúklingabringu og furuhnetur. Svo rista ég pítubrauð og set allt gúmmulaðið í og bý til sósu úr sýrðum rjóma 10% með smá karríi og sinnepi, algjört nammi :)

Kíki minn bloggrúnt á ykkur skvísurnar á eftir :)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 17:08:18 / ataksgellan

VATN.....................

Staðreyndir um vatn

Mikið er spurt um hversu mikinn vökva æskilegt er að drekka á dag. Í fullorðnum mannslíkama eru um 40 - 50 lítrar af vatni, um 65% af heildinni.  Við venjulegar aðstæður tapast um það bil 2,5 lítrar af þessum vökva daglega, þar af um 1,5 lítrar í þvagi, 0,4 lítrar um lungu, 0,5 lítrar í svita og með hægðum.  Við hvers konar líkamlega áreynslu eykst vökvatap í svita verulega og þá einkum ef loftslag er hlýtt.  Við mikið erfiði geta þannig tapast allt að 2 lítrar á klukkustund og í maraþonhlaupi hefur mælst upp í 6 lítra vökvatap í svita.
Mikið vökvatap minnkar líkamleg afköst verulega.  Rannsóknir hafa sýnt að 2% vökvatap af þyngd þýðir 20 % minni afköst.  Verði vökvatapið 5 - 10 % af líkamsþyngd getur það valdið sólsting, krampa og jafnvel orðið lífshættulegt.  Því er mjög mikilvægt að íþróttafólk sem og aðrir fái nægan vökva og þá hefur sýnt sig að ekki nægir að treysta á þorstatilfinninguna. Það er því skynsamlegt að drekka vel fyrir hvers konar áreynslu og síðan á hálftíma eða klukkutíma fresti, jafnvel oftar ef heitt er og áreynslan mikil.  Gott er að drekka t.d. Powerade eða aðra íþróttadrykki ef vökvatapið er óvenju mikið því þá endurnýjast líka söltin sem hreinsast út með vökvatapinu.  

Ekki gleyma að börn þurfa líka að drekka nægan vökva og sérstaklega þau börn sem eru dugleg að leika sér eða stunda íþróttir.  Það er góð regla að gefa börnum einhverskonar þynntan ávaxtasafa í leikhléi í hópíþróttum. Það virkar jafnvel að verðlauna þau fyrir að vera dugleg í vatnsdrykkju, til að venja þau á góðan ávana. 

Meðal einstaklingur missir um 2-3 lítra á sólarhring af vökva, þannig að lágmarks vökvainntak er um 2-3 lítrar á dag. Vökvi kemur líka í gegnum fæðu þannig að um 1-2 lítrar á dag ættu að vera nóg fyrir meðal mann. En í miklu líkamlegu álagi er allt annað upp á teningnum eins og áður kom fram.

Fann þessar staðreyndir um vatnið og ákvað að deila þeim með ykkur, setti líka inn nýja skoðanakönnun um vatnsdrykkju hér til hægri á síðunni.  Þetta er fyrsti goslausi dagurinn minn í langan tíma og ég er þegar búin að drekka 2 lítra af vatni í dag + hálfan líter af herbóteinu.  Takk fyrir commentin þið frábæru skvísur, nú verður ekki aftur snúið og stefnan er bara niður á við á vigtinni :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 15:10:41 / ataksgellan

Dugleg vs. ódugleg........

Ég get svarið það, mér tekst að ná mér niður í 71 kíló og þá skemmi ég það og bæti á mig yfir helgar og enda alltaf í 72.5 kílóum aftur, hvað er í gangi eiginlega!  Af hverju klára ég ekki dæmið og tek þetta alveg?  Svo les maður blogg eins og hjá henni Össu sem er búin að missa 20 kíló með þvílíkum dugnaði og vá hvað ég dáist að ykkur skvísur sem getið þetta!  Svo er ég að væla yfir því að ná ekki af mér 10 kílóum.  Fékk nýjan herbóskammt sendan í dag og nú hef ég aðeins mánuð þar til ég fer út til að komast niður fyrir 70 kílóin og stelpur vitiði að þetta er svo sálrænt, ég veit að ég verð svo glöð ef ég næ þessu markmiði fyrir utanlandsferðina mína, þ.e.a.s. að missa ca. 2-3 kíló.

Ég hef því tekið þrjár mjög mikilvægar ákvarðanir og ég ÆTLA mér að standa við þær.  Ég ætla ekki að drekka neitt gos þar til ég fer út og ég ætla að drekka 2 lítra af vatni á dag og hreyfa mig í minnst 30 mínútur.  Ef ég fer eftir þessu að þá hlýt ég að ná þessu fyrir miðjan júlí.  Hvað segiði stelpur?  Ég er nefnilega svo viss um að um leið og ég kemst niður fyrir næsta tug að þá verður það svo mikil hvatning fyrir mig að ég á ekki eftir að gefast upp.

En upp á síðkastið hafa veikindi verið að spila inn í átakið og þá er maður svo fljótur að detta úr gírnum.  En ekki gefast upp á að peppa mig og kíkja hingað inn því nú sem ég við ykkur að ná þessu markmiði mínu fyrir ferðina. Hvað segiði um það elskurnar mínar og komiði endilega með góð ráð sem virka vel :)

Knús til ykkar frá mér.


» 5 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill