21.04.2008 10:03:17 / ataksgellan

Sukkhelgin mikla

Úff, sukkaði aðeins of mikið um helgina - fékk mér pizzu á föstudaginn, fór svo á árshátíð um helgina og borðaði þríréttað, aðeins of mikið af gosi, smakkaði smá léttvín og í gær fékk ég mér hamborgara og franskar.  HALLÓ!!!!!!!!!!!!!!!!

En í dag er nýr dagur, ég er meira að segja að fara í sumarbústað fljótlega og ætla að taka LR-ið með mér og vera ógeðslega dugleg að fara út að hlaupa í sveitinni og slaka svo á í heita pottinum á eftir.  Ég verð alltaf svo svekkt þegar ég næ mér niður fyrir 70 kg en svo er svo erfitt að halda sér fyrir neðan þessa tölu.  Það er eins og ég slaki á þegar ég er orðin 69 kíló en það er bara algjörlega bannað.  Svo í dag vaknaði ég eftir sukkhelgina, drulluþreytt og vitlaus með mallann fullan af gosi og ógeði, jakkidíjakk er ekki að skilja hví ég geri þetta.

En nú er þetta opinbert, og í dag merki ég inn á dagatalið dag nr.1 án alls sukks og goss svo nú má vigtin fara að vara sig.

Takk fyrir kommentin dúllurnar mínar og gangi ykkur vel - sumardagurinn fyrsti framundan og ég ÆTLA að ná kjörþyngd minni áður en ég fer erlendis í sumar :)

Knús og gleðilegt sumar.

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 14:22:31 / ataksgellan

+ 1 kg

Byrjaði á því á mánudaginn að skokka 3 km.  Markmiðið var að byrja á því að skokka í 3 mín og ganga í 3 mínútur til skiptis í 25 mínútur samtals.  Ég er að fara eftir ákveðnu hlaupaplani sem ég útvegaði mér og svona á að gera fyrstu vikuna í alls 4 skipti.  Svo ákvað ég að gera jógaæfingar á eftir í ca 25 mínútur.  Þetta fannst mér fín byrjun og í gær vaknaði ég með langþráðar harðsperrur (veit að það hljómar fáránlega :) ) En í gær tók ég hvíld og stefni á það að hlaupa svo aftur í kvöld.  Í morgun steig ég á vigtina og brá í brún þegar hún var komin upp um 1 kg.  Ég var sem sagt 70.5 í morgun svo nú hef ég 3 mánuði til að ná mér niður fyrir markmiðið mitt sem er kjörþyngd og 64 kg.  Ég get - ætla og skal í þetta skiptið því ég nenni ekki að fara inn í eitt sumarið með samviskubit yfir því að hafa ekki gert betur, þið vitið eflaust hvað ég á við.

En alla vega, er núna hætt í gosinu, namminu og sætindunum nema þegar eitthvað spes er í gangi, afmæli, árshátíð eða annað en þetta er ekki keypt inn á heimilið fyrir mig alla vega.

Er búin að fara alveg eftir matarprógramminu mínu í dag en þar stefni ég á 7 litlar máltíðir yfir daginn, 3 aðalmáltíðir og 4 millimáltíðir.  Drekk teið mitt 3x yfir daginn + 2 lítra af vatni á móti því.

Borða fullt af ávöxtum og grænmeti svo nú fara fötin fljótlega að hanga aftur utan á mér, ég er búin að lofa sjálfri mér því.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 11:03:57 / ataksgellan

Mætt á ný

Vá, maður dettur inn og út úr þessum blogggír.  En nú er ég mætt aftur og ætla að blogga eins og óð manneskja næstu 3 mánuðina en ég er að byrja í nýju átaki.

Markmiðið er að ná mér niður fyrir 64 kíló fyrir lok júlí og þá verð ég megaglöð.

Fyrsti átaksdagurinn minn hefst á morgun en í dag byrja ég á því að fara eftir ákveðnu skokkplani og ætla að skokka reglulega næstu 3 mánuði.  Ég ætla mér að skrá árangurinn hingað inn og vigtina í hverri viku.  Fyrstu vigtartölurnar koma í fyrramálið og svo vikulega eftir það.

Vona að ykkur gangi öllum vel :) 
kv, Átaksgellan

» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill